Hér má finna algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni getur þú sent okkur tölvupóst buseti@buseti.is.
Eldhús
Er gert ráð fyrir uppþvottavél í eldhúsi?
Já innbyggð uppþvottavél fylgir með íbúðinni. Uppþvottavélin er ekki á ábyrgð Búseta. Ef hún bilar eða skemmist þá er það á ábyrgð búseturéttarhafa að kaupa nýja eða senda hana í viðgerð.
Er innbyggður ísskápur í íbúðinni?
Já, það fylgir innbyggður ísskápur með íbúðinni. Ísskápurinn er ekki á ábyrgð Búseta. Ef hann bilar eða skemmist þá er það á ábyrgð búseturéttarhafa að kaupa nýjan eða senda hann í viðgerð.
Eru eldhúseyjur í öllum íbúðum?
Nei eldhúsin eru mismunandi að gerð. Eldhúseyjur eru í eftirfarandi íbúðum: 114, 115, 213, 216, 217, 313, 315, 316, 412 og 414.
Almennt
Íbúðirnar sem eru auglýstar sem 3ja til 4ra herbergja, hvað eru mörg herbergi?
Íbúðin er með tveimur herbergjum og afmörkuðu rými í stofunni, sem er stúkað af frá stofunni með litlum vegg.
Kaupendur geta valið hvort íbúðin sé afhent sem 3ja eða 4ra herbergja íbúð, gegn aukakostnaði sem skiptist jafnt á milli kaupanda og Búseta. Ef valið er 4ra herbergja íbúð minnkar stofan sem nemur stærð herbergis.
Eru myndavéladyrasími í íbúðunum?
Já það er myndavéladyrasími í öllum íbúðum.
Er gólfhiti eða ofnar í íbúðunum?
Já, það er gólfhiti í öllum íbúðum.
Baðherbergi og þvottarhús
Á baðherbergi er hægt að tengja þvottavél þar?
Já í þvottahúsinu er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Ef íbúðin er með sér þvottarhúsi þá er ekki gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Er innrétting í þvottaherberginu?
Já það er innrétting með tveimur skúffum sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hvaða íbúðir eru með tveimur baðherbergjum?
Íbúðir 313, 316, 414 eru með tveimur baðherbergjum.
Eru walk-in sturtur?
Já, allar íbúðir eru með walk-in sturtum.
Er baðkar í baðherbergjunum?
Nei, allar íbúðir eru með walk-in sturtum.
Sameign
Er bílakjallari?
Já það er lokaður bílakjallari.
Eru allar íbúðir með sér bílastæði?
Já, allar íbúðir eru með sér bílastæði í bílakjallara.
Er lyfta?
Já
Verða tengi fyrir rafmagnsbíla í bílakjallara?
Já möguleiki er á uppsetningu á rafbílahleðslu í samstarfi við Búseta.
Verður aðstaða til að þvo bíla í kjallara?
Nei óheimilt er að þvo bíla í kjallara
Get ég keypt auka bílastæði í bílakjallaranum?
Nei, er ekki hægt að kaupa auka bílastæði í bílakjallara.
Eru djúpgámar fyrir ruslið?
Já, það eru djúpgámar fyrir ruslið.
Er þvottahús í kjallara?
Nei, allar íbúðir hafa rými fyrir þvottavélar og þurrkara.
Sölu- og afhendingarferlið
Hvar get ég fundið upplýsingar um sölu- og afhendingarferlið?
Við höfum sett upp upplýsingasíðu um Stefnisvog og þar eru ýmsar gagnlegar upplýsingar. Upplýsingar um sölu-og afhendingarferlið er hér
Hægt er að fara inn á vefsíðuna hér.
Þarf ég að vera félagi Búseta til að geta sótt um íbúð?
Já, aðeins félagar geta sótt um. Úthlutun fer eftir félagsnúmeri. Þú getur skráð þig sem félagi hér.
Hvenær opnar fyrir umsóknir?
Hvenær lokar fyrir umsóknir?
Á miðnætti 14. maí.
Hvenær er úthlutun á íbúðunum?
Úthlutun er 15. maí kl. 12:00
Hvenær eru íbúðirnar afhentar?
Afhendingartímabilið er frá 1. júní til 29. ágúst 2025.
Er hægt að skipta upp greiðslunum fram að afhendingu?
Já, hægt er að skipta greiðslunum fram að afhendingu. Borga þarf búseturéttinn að fullu 2 vikum fyrir afhendingu. Nánari upplýsingar hér
Er hægt að taka lán fyrir minna en auglýst er?
Já, lánið sem er auglýst er hámarkslán sem í borð er en hver og einn getur valið lægri upphæð. Nánari upplýsingar hér
Er hægt taka hærra lán en auglýst er?
Nei, því miður er lánið sem er auglýst hámarkslán sem Búseti býður uppá.
Ef þörf er á hærri lánið mælum við með að hafa samband við þinn viðskiptabanka og athuga hvort þau geta boðið uppá hærra lán. Nánari upplýsingar um lánamöguleikann er hægt að finna hér
Hvað þarf ég að greiða mikið við undirritun á bráðabirgðasamning?
Þú þarft að greiða 20% af kaupverði ásamt óendurkræfu umsýslugjaldi upp á kr. 150.000.-
Dæmi: Búseturéttur kostar 15.000.000.- þá þarf að greiða 3.000.000 + 150.000, samtals kr. 3.150.000.- við undirritun bráðabirgðasamnings. Nánari upplýsingar hér
Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni ekki hika við að senda á okkur fyrirspurn.