Íbúðamyndir, teikning og lýsing af íbúð 114 á fyrstu hæð.
Íbúð 114
Almennt um íbúðina
Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með hellulagðri verönd sem snýr inn í inngarðinn. Ljóst parket er á gólfum en á baðherbergi og í þvottahúsi eru ljósar flísar sem og á veggjum. Loftskiptakerfi og gólfhiti er í íbúðinni. Innihurðir eru hvítar. Búið er að tengja ljósleiðara. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.
INNRA SKIPULAG ÍBÚÐAR:
Anddyri
Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum.
Stofa og eldhús
Ljósgrá eldhússinnrétting með dökkgrárri borðplötu og dökkum höldum, eyja með undirboðsofni og spanhelluborð. Gufugleypir fyrir ofan helluborðið. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu, tækin fylgja með en eru ekki á ábyrgð Búseta hsf.
Úr eldhúsi er gengið út á verönd sem snýr í austur.
Svefnherbergi
Ljósgráir fataskápar með slám, hillum og skúffum, dökkar höldur.
Barnaherbergi
Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum, dökkar höldur.
Baðherbergi
Ljósgrá innrétting með speglaskáp fyrir ofan vask, skúffa undir vaski, dökkgrá borðplata og höldur. Vegghengt salerni. Handklæðaofn. Sturta með glerhlið.
Þvottahús
Ljósgrá innrétting með hillu fyrir þvottavél og þurrkara, skúffur undir hillunni. Vinnuborð með skolvaski.
Geymsla
Er staðsett í bílakjallara.
Lýsing er birt með fyrirvara um villur og breytingar.