framana-milliskorin

Íbúð 214

Íbúðamyndir, teikning og lýsing af íbúð 214 á annarri hæð.

Íbúð 214

Almennt um íbúðina

Tveggja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum sem snúa inn í inngarðinn. Ljóst parket er á gólfum en á baðherbergi eru ljósar flísar sem og á veggjum. Loftskiptakerfi og gólfhiti er í íbúðinni. Innihurðir eru hvítar. Búið er að tengja ljósleiðara. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.

INNRA SKIPULAG ÍBÚÐAR:

Anddyri

Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum.

Stofa og eldhús

Ljósgrá eldhússinnrétting með dökkgrárri borðplötu og dökkum höldum, undirborðsofn og spanhelluborð. Vifta fyrir ofan helluborðið. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu, tækin fylgja með en eru ekki á ábyrgð Búseta hsf.

Úr stofu er gengið út á svalir sem snúa í austur.

Svefnherbergi

Ljósgráir fataskápar með slám, hillum og skúffum, dökkar höldur.

Baðherbergi

Ljósgrá innrétting með speglaskáp fyrir ofan vask, skúffa undir vaski, dökkgrá borðplata og höldur. Vegghengt salerni. Handklæðaofn. Sturta með glerhlið. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla

Er staðsett í bílakjallara.

Lýsing er birt með fyrirvara um villur og breytingar.