framana-milliskorin

Íbúð 315

Íbúðamyndir, teikning og lýsing af íbúð 315 á þriðju hæð.

Íbúð 315

Almennt um íbúðina

Þriggja herbergja endaíbúð á 3. hæð með þaksvölum sem snúa í suður. Millidökkt parket er á gólfum en á baðherbergi og í þvottahúsi eru ljósar flísar sem og á veggjum. Loftskiptakerfi og gólfhiti er í íbúðinni. Innihurðir eru hvítar. Búið er að tengja ljósleiðara. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.

INNRA SKIPULAG ÍBÚÐAR:

Anddyri

Ljósgráir fataskápar með slá og skúffum.

Stofa og eldhús

Eldhússinnrétting með ljósgráum neðri hluta og svarbrúnum efri hluta, dökkgráar borðplötur og dökkar höldur. Veggofn í innréttingu. Spanhelluborð í eyju. Gufugleypir fyrir ofan helluborðið. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu, tækin fylgja með en eru ekki á ábyrgð Búseta hsf.

Úr stofu er gengið út á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.

Svefnherbergi

Ljósgráir fataskápar með slám, hillum og skúffum, dökkar höldur.

Barnaherbergi

Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum, dökkar höldur.

Baðherbergi

Svarbrún innrétting með speglaskáp fyrir ofan vask, skúffa undir vaski, dökkgrá borðplata og höldur. Vegghengt salerni. Handklæðaofn. Sturta með glerhlið.

Þvottahús
Ljósgrá innrétting með hillu fyrir þvottavél og þurrkara, skúffur undir hillunni. Vinnuborð með skolvaski.

Geymsla

Er staðsett í bílakjallara.

Lýsing er birt með fyrirvara um villur og breytingar.