Íbúðamyndir, teikning og lýsing af íbúð 316 á þriðju hæð.
Íbúð 316
Almennt um íbúðina
Þriggja herbergja endaíbúð á 3. hæð með þaksvölum sem snúa í suður. Millidökkt parket er á gólfum en á baðherbergjum og í þvottahúsi eru ljósar flísar sem og á veggjum. Loftskiptakerfi og gólfhiti er í íbúðinni. Innihurðir eru hvítar. Búið er að tengja ljósleiðara. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni.
INNRA SKIPULAG ÍBÚÐAR:
Anddyri
Ljósgráir fataskápar með slá og skúffum.
Stofa og eldhús
Eldhússinnrétting með ljósgráum neðri hluta og svarbrúnum efri hluta, dökkgráar borðplötur og dökkar höldur. Veggofn og Combi ofn í innréttingu. Spanhelluborð í eyju. Gufugleypir fyrir ofan helluborðið. Stór lokaður tækjaskápur. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu, tækin fylgja með en eru ekki á ábyrgð Búseta hsf.
Úr stofu er gengið út á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi
Ljósgráir fataskápar með slám, hillum og skúffum, dökkar höldur.
Barnaherbergi
Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum, dökkar höldur.
Baðherbergi eru tvö
Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi. Svarbrún innrétting með speglaskáp fyrir ofan vask, skúffa undir vaski, dökkgrá borðplata og höldur. Vegghengt salerni. Handklæðaofn. Sturta með glerhlið.
Þvottahús
Ljósgrá innrétting með hillu fyrir þvottavél og þurrkara, skúffur undir hillunni. Vinnuborð með skolvaski.
Geymsla
Er staðsett í bílakjallara.
Lýsing er birt með fyrirvara um villur og breytingar.
Nettóstærð íbúðar er sett inn á teikningarnar, þ.e. fermetrastærð á gólffleti.