framana-milliskorin

Íbúð 414

Íbúðamyndir, teikning og lýsing af íbúð 414 á fjórðu hæð.

Íbúð 414

Almennt um íbúðina

Þriggja herbergja endaíbúð á 3. hæð með þaksvölum sem snúa í suður. Millidökkt parket er á gólfum en á baðherbergjum og í þvottahúsi eru ljósar flísar sem og á veggjum. Loftskiptakerfi og gólfhiti er í íbúðinni. Innihurðir eru hvítar. Búið er að tengja ljósleiðara. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni.

INNRA SKIPULAG ÍBÚÐAR:

Anddyri

Ljósgráir fataskápar með slá og skúffum.

Stofa og eldhús

Eldhússinnrétting með ljósgráum neðri hluta og svarbrúnum efri hluta, dökkgráar borðplötur og dökkar höldur. Veggofn og Combi ofn í innréttingu. Spanhelluborð í eyju. Gufugleypir fyrir ofan helluborðið. Stór lokaður tækjaskápur. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu, tækin fylgja með en eru ekki á ábyrgð Búseta hsf.

Úr stofu er gengið út á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.

Svefnherbergi

Inn af svefnherbergi er gott fataherbergi með opnum dökkgráum skápum, í þeim eru slár, hillur og skúffur. Gluggi er á herberginu.

Úr svefnherberginu er gengið út á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.

Barnaherbergi

Ljósgrár fataskápur með slá og skúffum, dökkar höldur.

Baðherbergi eru tvö

Svarbrún innrétting með speglaskáp fyrir ofan vask, skúffa undir vaski, dökkgrá borðplata og höldur. Vegghengt salerni. Minna baðherbergið er einungis með innréttingu og salerni. En stærra baðherbergið er einnig með handklæðaofn og sturtu með glerhlið.

Úr stærra baðherberginu er gengið út á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.

Þvottahús
Ljósgrá innrétting með hillu fyrir þvottavél og þurrkara, skúffur undir hillunni. Vinnuborð með skolvaski.

Geymsla

Er staðsett í bílakjallara.

Lýsing er birt með fyrirvara um villur og breytingar.