UMSÓKNAR- OG KAUPFERLI BÚSETURÉTTAR Í NÝBYGGINGUM

Sala á 13 búseturéttum við Stefnisvog 28 er hafin. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 14. maí. Úthlutun fer svo fram 15. maí, kl. 12:00 með rafrænum hætti.

Til að geta sótt um íbúð verður þú að vera félagsmaður en hægt er að skrá sig í Búseta hér GERAST FÉLAGI

Íbúðir í nýbyggingum Búseta eru auglýstar á föstu verði og félagsnúmer ræður röð umsækjenda.

SKREF 1 - Innskráning á „Minn Búseti“:

  • Til að sækja um íbúð, eina eða fleiri, þarf að skrá sig inn á „Minn Búseti“ með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og lykilorði.
  • Umsækjandi þarf að vera skuldlaus félagsmaður til að geta sótt um búseturétt.
  • Mikilvægt er að gilt netfang sé skráð við félagsaðildina.
  • Ef þú ert ekki félagsmaður þá getur þú skráð þig hér og skráð þig á örfáum mínútum.

SKREF 2 – Umsókn fyllt út:

  • Þegar komið er inn á „Minn Búseti“ er hægt að sækja um þær íbúðir sem eru lausar. Hægt er að sækja um fleiri en eina íbúð.
  • Þær íbúðir sem umsækjandi velur safnast saman í „Mínar umsóknir“. Mikilvægt er að raða völdum íbúðum í forgangsröð með því að draga þær upp eða niður. Við úrvinnslu umsókna er notast við þessa röðun og ef umsækjandi fær íbúð er eytt út úr umsóknarferlinu þeim íbúðum sem eru neðar í röðinni hjá viðkomandi.
  • ATH umsóknarfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 14. maí 2025.

SKREF 3 – Úthlutun:

  • Úthlutunarlisti (listi yfir röð umsækjenda) verður birtur á www.buseti.is kl. 12:00 fimmtudaginn 15. maí 2025.
  • Tölvupóstur er sendur á efsta umsækjanda á listanum með tilkynningu um úthlutun. Sá umsækjandi verður að staðfesta úthlutunina fyrir kl. 15:00 sama dag með því að svara tölvupóstinum. Ef þú svarar ekki er það tekið sem neitun og næsti í röðinni fær íbúðina.
  • Ef þú hefur í hyggju að taka lán hjá Landsbankanum þarftu að tilkynna það strax á netfangið buseti@buseti.is.
  • Lánið er háð lánareglum Landsbankans og er veitt að undangengnu greiðslumati bankans. Það er flokkað sem fasteignalán, það má vera allt að helmingur af búseturétti, hámark kr. 12.500.000.- og getur verið til 12 ára. Lánið er með breytilegum vöxtum 10,05% óverðtryggt og 5,2% verðtryggt. Lántökugjald er kr. 59.900.- Ekki er lánað fyrir kostnaði. Í eftirfarandi tengli má lesa um lánakjör vegna kaupa á búseturétti

SKREF 4 – Bráðabirgðasamningur og greiðsla búseturéttar:

  • Ganga þarf frá bráðabirgðasamningi vegna kaupa á búseturétti innan 10 virkra daga frá úthlutun. Þú bókar fund til þess hér eða með því að hringja í síma 556-1000 eða sendir tölvupóst á buseti@buseti.is.
  • Um leið greiðir þú staðfestingargjald sem er 20% af kaupverði búseturéttar auk umsýslukostnað kr. 150.000. Greiðslan fer fram með millifærslu og gott er að vera búin/n að hafa samband við sinn viðskiptabanka áður ef upphæð fer yfir heimild dagsins.
  • Hægt er að greiða búseturétt að fullu við gerð bráðabirgðasamnins eða dreifa mismuninum í nokkrum greiðslum, með síðustu greiðslu 14 dögum fyrir afhendingu íbúðarinnar. Lokagreiðslan má að hámarki vera 20% af kaupverði búseturéttar.
  • Best er að leita til viðeigandi lífeyrissjóðs eða RSK varðandi upplýsingar um séreignasparnaðar.
  • Ef hjón eða sambúðarfólk ætlar að vera skráð saman á búsetusamninginn þurfa báðir aðilar að vera félagsmenn, hægt er að ganga frá félagsaðild í gegnum heimasíðuna eða á skrifstofu félagsins, árgjaldið er kr. 5.500.-. Ath. báðir aðilar þurfa að mæta á fundinn og skrifa undir bráðabirgðasamninginn.
  • Þegar farið er á milli búsetaíbúða gengur eldri búseturéttur upp í þann nýja, að frádregnum kostnaði. Hér má nálgast verðskrá. Íbúi verður að vera í skilum með búsetugjöldin. Landsbankalán getur færst á milli íbúða. Hvert tilfelli er þó skoðað fyrir sig þegar að samningsgerð kemur. Að öðrum kosti er lán greitt upp.
  • Afhendingartímabil er frá 1. júní til 29. ágúst 2025.

SKREF 5 – Afhending íbúðar:

  • Fulltrúi frá Búseta framkvæmir úttekt á íbúðinni, ásamt kaupanda og afhendir honum svo lykla. Um leið er skrifað undir búsetusamning sem Búseti sér um að láta þinglýsa.
  • Búsetugjaldið er greitt fyrir fram og þarf að vera greitt fimm dögum fyrir afhendingu íbúðar. Það verður innheimt með kröfu í heimabanka.
  • Athugið að auglýst búsetugjöld taka mið af áætlun sem verður leiðrétt þegar raungjöld falla til og komið er endanlegt fasteigna- og brunabótamat á eignirnar sem og hússjóður þegar húsfélag hefur verið stofnað.

*Birt með fyrirvara um villur.